[b]Android notendur[/b][br][br]A) Fullvissaðu þig um að sími/spjald ráði við sýndarveruleika með því að kanna hvort tækið sé á [url=https://developers.google.com/ar/discover/supported-devices]þessum lista[/url]. Ef svo er ekki þá gæti þurft að uppfæra stýrikerfi tækisins eða nota annað tæki.[br][br]B) Settu upp [b][color=#9900ff]Google Play Services for AR[/color][/b] á tækið. [url=https://play.google.com/store/apps/details?id=com.google.ar.core] Það má finna í Play Store HÉR[/url]. [br][br]C) Settu upp [url=https://play.google.com/store/apps/details?id=org.geogebra.android.g3d]GeoGebra 3D Calculator[/url] á tækið. [br][br]D) Opnaðu GeoGebra 3D Calculator appið. Athugaðu að þú getur stillt á íslensku sem þitt tungumál (Veldu Settings efst í vinstra horni og settu Language sem Icelandic, endurræsa þarf appið til að það verði á íslensku).[br][br][b]iOS notendur[br][br][/b]A) Settu upp [url=https://itunes.apple.com/us/app/geogebra-3d-graphing-calc/id1445871976]GeoGebbra 3D Calculator[/url] á tækið.[br][br]B) Opnaðu GeoGebra 3D Calculator appið. Athugaðu að þú getur stillt á íslensku sem þitt tungumál (Veldu Settings efst í vinstra horni og settu Language sem Icelandic, endurræsa þarf appið til að það verði á íslensku).[br][br]
[b]Smelltu á strikin þrjú efst í vinstra horni. [/b]Opnaðu þrívíðan hlut af GeoGebra vefnum. Þetta er gert með því að velja strikin þrjú efst í vinstra horni og "Opna" (Open).[br][br]Ef ekkert birtist þá geturðu slegið inn í leitarglugga, t.d. "Cube net" eða "Sample coffee mug" eða "Wendeltreppe" eða "Möbius". Veldu einhvern þrívíðan hlut.
Nú geturðu prófað sýndarveruleika. Veldu [b]AR [/b]í neðra hægra horni, á efri hluta skjásins. Þá opnast myndavél tækisins. [b][color=#9900ff]Hreyfðu þig hægt og leitaðu að yfirborði! [/color][/b]
Ef þú heldur tækinu kyrru í nokkrar sekúndur yfir borði eða gólfi þá ætti að birtast þríhyrninganet líkt og sést hér að neðan.[br]
Ef þú sérð ekkert slíkt net skaltu færa þig rólega nær. Þegar miðunarferningur birtist (sjá hér að ofan) þá geturðu smellt hvar sem er til að staðsetja hlutinn sem þú teiknaðir áðan.
Þá geturðu skoðað þig um og gengið kringum hlutinn eða jafnvel inn í hlutinn og þysjað inn og út eins og hentar. Mundu bara að hreyfa þig hægt![br]
Með því að nota Verkfærin geturðu teiknað hlut í GeoGebra3D.
Ef þér finnst erfitt að teikna hluti á símanum eða spjaldi þá geturðu líka opnað GeoGebra3D í vafra á tölvu, teiknað hlut og vistað á þínum GeoGebra-aðgangi. Notaðu eitthvert nafn sem þú manst og leitaðu að því á símanum eða spjaldi. Það ætti að vera hægt að velja hlutinn sem þú bjóst til!
Prófaðu til dæmis að teikna kúlu eða kassa, pýramída eða gosdós.[br][br]Hlutir í herberginu geta veitt innblástur að því sem þú vilt gera líkan af.[br][br]Prófaðu þig áfram!