Þegar búið er að flytja út mynd úr GeoGebru sem .[i]png [/i]skjal, þá má setja myndina inn í textaskjal (t.d. MS Word, LibreOffice Writer).[br][list][*]Opnið textaskjal (nýtt eða annað).[br][/*][*]Setjið bendilinn þangað sem þið viljið setja myndina.[/*][*]Veljið [i]Insert[/i] og [i]Picture[/i] og finnið myndina sem þið vistuðuð úr GeoGebru.[br][/*][/list][br][b]Stærð myndar aðlöguð í Word[br][/b]Í MS Word má breyta stærð myndar:[br][list][*]Tvísmellið á myndina.[br][/*][*]Breytið hæð/breidd hægra megin undir [i]Size[/i].[/*][/list][br][u]Ábending[/u]: Með því að breyta stærð myndar þá skalast hún upp/niður.[br][br][u]Ábending[/u]: Hafi mynd verið stór í upphafi getur verið að MS Word aðlagi stærðina ósjálfrátt til að hún passi inn í skjalið.
[list][*]Opnið nýtt skjal eða skjal sem þið eigið þegar til.[br][/*][*]Setjið bendilinn þangað sem þið viljið setja myndina.[/*][*]Veljið [i]Insert [/i]og [i]Picture[/i] og síðan[i] from File [/i]til að finna myndina.[/*][/list][br][b]Stærð myndar aðlöguð í LibreOffice Writer[/b][br][list][*]Tvísmellið á myndina[/*][*]Smellið á [i]Type[/i] flipann í [i]Picture[/i] samskiptaglugganum.[br][/*][*]Breytið stærð[/*][*]Smellið á [i]OK.[/i][br][/*][/list]